Persónuverndarstefna
Persónuvernd í fyrirrúmi
Hjá Mermaid leggjum við mikla áherslu á persónuvernd. Við söfnum engum óþarfa upplýsingum, fylgjumst ekki með ferðum þínum á netinu með vafrakökum (e. cookies) og bæði seljum hvorki né deilum gögnunum þínum með þriðja aðila.
Vefmælingar
Við notum Cloudflare Web Analytics til að mæla umferð um vefinn okkar. Sú lausn nýtir engar vafrakökur og safnar engum persónurekjanlegum upplýsingum (PII). Hún er alfarið hönnuð með það að markmiði að vernda friðhelgi þína á netinu á sama tíma og hún gefur okkur yfirsýn yfir notkun vefsins.
Hafa samband
Þegar þú sendir okkur fyrirspurn í gegnum vefinn eru upplýsingarnar þínar (svo sem nafn, netfang og skilaboð) aðeins sent í okkar innri kerfi. Gögnin eru eingöngu nýtt til að svara erindi þínu og verður aldrei deilt, leigt eða selt þriðja aðila undir nokkrum kringumstæðum.
Breytingar á þessari stefnu
Komi til þess að við breytum verklagi okkar í framtíðinni, munum við uppfæra þessa síðu í samræmi við það. Hins vegar mun öryggi og persónuvernd okkar gesta ávallt vera í algerum forgangi hjá okkur.